Hjólastilling

Rétt hjólastilling skiptir sköpum til að auðvelda ökumönnum stjórn á ökutækinu og hámarka jafnvægi bílsins við hemlun. Hún eykur einnig líftíma hjólbarðanna, dregur úr eldsneytiseyðslu og gerir aksturinn þægilegri. Hjólastilling borgar sig upp á afar skömmum tíma í dekkjasliti og eldsneytiseyðslu bílsins.

Fjöðrunarbúnaður er flókinn og krefst þess að jafnvægi sé í stillingu allra fjögurra hjólanna. Sumir telja nægilegt að stilla aðeins af framhjólin en óhætt er að mæla með því að farið sé með bílinn á verkstæði þar sem öll fjögur hjólin eru mæld í tölvu og þau stillt til að hámarka afköst fjöðrunarkerfisins. Þess verður þó að geta ekki er hægt að stilla afturhjól á öllum bílum.

Hjólastilling er ekki það sama og jafnvægisstilling á dekkjum.

Helstu vísbendingar um að bílinn þarfnist hjólastillingar eru:

  • Stýrishjólið er ekki í réttri stöðu þegar ekinn er beinn vegur.
  • Óeðlileg hljóð heyrast frá fjöðrunarbúnaðinum.
  • Bíllinn rásar frá einni hlið vegar til hinnar.
  • Bíllinn leitast við að beygja til annarrar hliðar þegar ekinn er beinn vegur eða þegar hemlað er.
  • Titringur er í stýri eða í gegnum sæti bifreiðarinnar.
  • Stýrið virkar of létt.
  • Ekki hefur verið farið með bílinn í hjólastillingu á langan tíma.
  • Slit á dekkjunum er ójafnt.
  • Það vælir í dekkjunum í beygjum.
  • Bíllinn réttir sig ekki hnökralaust af eftir beygju.

Rétt hjólastilling skiptir sköpum til að auðvelda ökumönnum stjórn á ökutækinu og hámarka jafnvægi bílsins við hemlun.

Hún eykur einnig líftíma hjólbarðanna og gerir aksturinn þægilegri.

Verð:

  • Fólksbíll kr. 16.900
  • Jepplingur kr. 17.900
  • Jeppi kr. 18.900
  • Breyttur jeppi kr. 25.900